Blogg Mána Atlasonar.


júní 2, 2009, 6:08 pm
Filed under: Uncategorized

Einn af frægari ljósmyndurum fyrri hluta síðustu aldar er Robert Capa. Hann dó árið 1954 en hafði þá skapað sér nafn með stríðsljósmyndum. Capa fór oft hættulega nálægt myndefninu og uppskar fyrir það mikið lof, en hans frægasta mynd er hér að neðan, myndin af fallna hermanninum (sem lést í þann mund sem myndin var tekin).

Setningin ,,Ef myndin er ekki nógu góð, farðu þá nær” er höfð eftir Capa, en af því má ráða að hann hafi ekki verið mikill aðdráttarlinsumaður. Enda gekk hann fram í víglínuna til að ná sínum myndum.

Um helgina labbaði ég með pabba upp að fossinum Glym, sem er rétt tæplega 200 metra hár. Leiðin liggur meðfram Glymsgili sem er u.þ.b. 200 metra hátt (svo að fossinn passi ofan í það) og alveg þverhnípt niður. Ég tók m.a. myndina sem er hér að neðan og komst enn og aftur að þeirri niðurstöðu að mig vantar lengri linsu.

Fýlar

Fýlar

Trikkið hans Robert Capa virkar nefnilega ekki þegar það að ganga aðeins nær myndefninu þýðir að maður hrapi niður 200 metra djúpt gil…

Annars vonast ég til að fá lengri linsu á næstunni.




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.