Bindi
2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
maí 13, 2009, 11:27 pm
Filed under: Uncategorized
Filed under: Uncategorized
Ég skil ekki af hverju einhverjir þingmenn vilja ekki hafa bindi. Mér finnst það að koma á löggjafarþingið einmitt bara vera fínt tilefni til að hafa bindi.
Það er þrjú fyrir tvö tilboð á bindum í Dressman. Þeir þingmenn sem ekki eiga bindi ættu bara að skella sér þangað og kaupa sér bindi. Ef það er of mikið mál fyrir þá að hnýta bindishnútinn geta þeir beðið manninn í búðinni að gera það og geymt svo bindið bara alltaf með hnútnum.
Þetta er nú ekki flókið.
Ég kannski mæti bara með bindi í vinnuna á morgun, held að það sé bara ágætt að hafa bindi í vinnunni.

Maður mundi nú ekki vorkenna neinum að þurfa að vera með svona flott Tetris bindi…
2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli







Ég hef nú aldrei skilið tilganginn með bindum yfir höfuð. Að hengja einhverja tusku um hálsinn sem gerir akkurat ekki neitt er fyrir mér að öllu leiti óskiljanlegt. Ég hef ekki notað bindi síðan ég hugsaði út í þetta í fyrsta sinn fyrir svona 4 árum (og ætla mér ekki að gera það).
Að neyða fólk til að hengja svona dót um hálsinn á sér er einfaldlega heimskulegt.
Comment af Kári Rafn Karlsson maí 17, 2009 @ 2:17 amEkki fatta ég tilganginn í því að afnema bindiskilduna, væri frekar töff ef alþingi væri með svona þemadaga, t.d allir væru með star wars bindi eða já svona töff tetrisbindi.
Comment af Sóli maí 17, 2009 @ 11:03 am